Stuðningur ráðgjafa við kennaraRáðgjafi veitir ráðgjöf sex sinnum á tímabilinu. Hann hefur til ráðstöfunar u.þ.b. 2–4 klukkustundir til fundar með þátttakendum. Efni funda snýst m.a. um framkvæmd og stöðu verkefnis, áætlanir kennara, frekari fræðslu, skipulag, reynslu kennara í verkefninu, álitamál sem koma upp og mat á árangri. Fundirnir eru að jafnaði haldnir í skólanum nema samið sé um annað.
|
Stuðningur verkefnisstjóra við kennaraVerkefnisstjóri heldur reglulega fundi, a.m.k. þrjá á hvorri önn með kennurum. Efni fundanna varða framkvæmd og framvindu þróunarstarfsins, öflun gagna og úrvinnslu þeirra, stuðning við kennara, upplýsingar til foreldra og almenna samræmingu á framkvæmd, mati og meðferð upplýsinga. Verkefnisstjóri sinnir reglulegri ráðgjöf til kennara á móti ráðgjafa. Kennarar geta þess utan leitað til verkefnisstjóra ef þörf er á.
|
Stuðningur kennara innbyrðisMikilvægt er að kennarar í skólanum veiti hver öðrum stuðning. Það gerist með samræðu, sameiginlegri
skipulagningu og lausnaleit sem hentar einum eða fleirum í hvert skipti. Æskilegt er að kennarar geti heimsótt hvern annan í kennslustundir og verið augu og eyru þess kennara sem heimsóttur er. Ef það er ekki hægt ættu kennarar eftir sem áður að fara yfir framkvæmd hvers kennara, skoða gögn sem verða til í verkefninu, ræða þau og nýta sér. Æskilegt er að kennarar fylgist vel með þróunarstarfinu á öllum stigum, þótt þeir kenni aðallega á einu stigi. |
Stuðningur stjórnenda við verkefnisstjóra og kennaraStuðningur skólastjórnenda er mikilvægur. Hann kemur fyrst og fremst fram í áhuga þeirra á því sem verkefnisstjóri og kennarar takast á við. Þeir funda með verkefnisstjóra, geta heimsótt kennara í kennslustofur, spurt þá um gengi, uppörvað þá og spurt eftir þörf á stuðningi. Enn fremur kemur stuðningur þeirra fram í tilhliðrun vegna endurmenntunar og fundarhalda.
|
Stuðningur við stjórnendurMikilvægt er að kennarar og aðrir sem að málinu koma hugi að því að þeirra eigin stjórnendur þurfa einnig á uppörvun að halda og því að kennarar sýni þeim skilning og styðji þá í að taka nauðsynlegar ákvarðanir. Skólastjórnendur munu eiga aðgang að ráðgjafa þegar
þeir kjósa. |