Ráðgjafi – rannsakandiRáðgjafi hefur yfirumsjón með verkefninu, leggur til sérþekkingu er varðar inntak verkefnisins, heldur námskeið og fræðslufundi. Ennfremur sinnir hann ráðgjöf við skólann á tímabilinu september til maí.
Ráðgjafi leggur fram tillögur um tilhögun verkefnisins og framkvæmdaráætlun sem nær til verkefnisins í heild. Þar er inntaki lýst, framkvæmdaferli, hlutverki þeirra sem að málinu koma og fleira sem tilheyrir slíkum áætlunum. Á milli ráðgjafafunda hefur ráðgjafi fyrst og fremst samskipti við verkefnisstjóra innan skólans og er honum innan handar eftir því sem þörf er á. Ráðgjafi leggur til rannsóknar- og matshugmyndir og matsböð (rafræn) varðandi innra mat á verkefni og staðlað orðaforðapróf (rafrænt) svo og leiðbeiningar um fyrirlögn og viðmið um mat. Skólarnir útvega sér sjálfir lesskilningspróf en mælt er með Orðarún sem eru stöðluð og áreiðanleikamæld próf. Ráðgjafi getur verið til ráðuneytis um skýrsluskrif og lagt til fræðilegan kafla um orðaforða, lestur til náms og gerð hugrænna korta. |
Verkefnisstjóri innan skólaÍ skólanum er starfandi verkefnisstjóri sem stýrir verkefninu innan skólans. Hann hefur yfirsýn yfir þróunarverkefnið og samhæfir störf kennara innan skólans.
Hann heldur skrá um þá kennara sem starfa við verkefnið, fær hjá þeim kennsluáætlanir, aflar upplýsinga um gengi á hverjum tíma, kannar þörf á stuðningi og leitar eftir leiðum til að veita hann, veitir aðhald, hefur umsjón með mati kennara, safnar gögnum um gengi nemenda, heldur saman öðrum gögnum sem nýta má t.d. í skýrslur um verkefnið, veitir skólasamfélaginu, nemendum, kennurum og foreldrum upplýsingar um framgang verkefnisins. Verkefnisstjóri gefur skólastjóra reglulega upplýsingar um gengi verkefnisins og vinnur að gerð lokaskýrslu. |