Innra og ytra matGert er ráð fyrir því að ráðgjafi leggi til eyðublöð fyrir
sjálfsmat kennara og mat kennara á stöðu og framförum nemenda. Skólinn þarf að útvega sér lesskilningspróf til að leggja fyrir nemendur tvisvar til þrisvar á vetri – mælt er með Orðarún sem er aðgengilegt á Mentor. Ráðgjafi leggur til Orðalykil sem er staðlað og áreiðanleikamælt orðaforðapróf og skólar leggja það tvisvar fyrir. Skólinn vinnur sjálfur úr gögnum sem safnast á tímabilinu og gefur upplýsingar til nemenda, kennarasamfélagsins og foreldra. Kennarar leggja prófin fyrir, lesa úr prófum fyrir sinn bekk en verkefnisstjóri heldur heildarskráningu og setur hana á sýnilegt form. |
Gögn sem fylgja verkefniØ Fræðileg handbók. Fræðilegt efni um orðaforða og lestur til náms (efnið er á rafrænu formi).
Ø Kennarahandbók. Fjölbreytilegum kennsluhugmyndum lýst. Lykilaðferðir auk þess útfærðar sérstaklega í máli og myndum (efnið er á rafrænu formi). Ø Myndasöfn. Myndir hafa verið teknar í þeim skólum sem hafa tekið þátt í verkefninu, allt frá árinu 2008. Á myndunum sést hvernig kennsluhugmyndir hafa verið útfærðar á mismunandi hátt, t.d. eftir aldri nemenda, námsgreinum og námsefni og þá sést hvernig kennarar hafa þróað sínar eigin leiðir í bland við aðra kennslu (efnið er á rafrænu formi). Ø Matshugmyndir. Í verkefninu fylgja hugmyndir um mat á orðaforða og lesskilningi og innra mat á færni nemenda í lykilaðferðum verkefnis. Orðalykill, staðlað og áreiðanleikamælt orðaforðapróf fylgir (á rafrænu formi). |