Hlutverk kennaraKennarar læra aðferðir sem þeir kenna nemendum, skref fyrir skref, stig af stigi. Þeir stýra einnig yndislestri sem stendur yfir allt tímabilið, 15 til 30 mínútur á dag. Kennarar safna saman þrenns konar
upplýsingum á hvoru tímabili: a) Niðurstöðum lesskilningsprófa í september, desember (val) og maí. Kennarar fá prófin í hendur, leggja þau fyrir, fara yfir og skrá niðurstöður. b) Niðurstöðum orðaforðaprófs í september og maí. Kennarar fá prófin í hendur, leggja þau fyrir, fara yfir og skrá niðurstöður. c) Þrisvar á haustönn safna kennarar gögnum í samráði við nemendur (t.d. fjölbreytileg orðavinna). Kennarar fara yfir gögnin, meta þau og skrá árangur samkvæmt matshugmyndum sem ráðgjafi leggur til. Þrisvar sinnum á vorönn safna kennarar gögnum í samráði við nemendur (t.d. orðavinna, samantekt (glósur) eða hugtakakort) sem kennarar fara yfir, meta og halda skrá yfir framfarir samkvæmt matshugmyndum sem ráðgjafi leggur til. |
Frh ...Gert er ráð fyrir að kennarar geri kennsluáætlanir þar sem þeir gera grein fyrir hvernig þeir kenna nemendum stig af stigi. Þessum áætlunum er skilað til verkefnisstjóra í skólanum.
|